
Eydís Ösp er djákni og starfar á Akureyri. Hún er með BA gráðu í Félagsráðgjöf og viðbótardiplómu í sálgæslufræðum frá EHÍ. Hún hefur komið að stuðningshópastarfi síðan árið 2017 og hefur leitt hópa vegna barnsmissis, systkinamissir og makamissis, fyrst á vegum Samhygðar og nú fyrir Sorgarmiðstöð.