Lokað frá 23. desember til 3. janúar. Allar pantanir sem berast á þeim tíma verða afgreiddar eftir 3. janúar. Gleðilega hátíð
Í þessari grein skrifar Erna Guðmundsdóttir lögfræðingur um réttindi við andlát maka.
Birna Dröfn Jónasdóttur, blaðakona, hópstjóri og stjórnarmeðlimur hjá Sorgarmiðstöðinni kom í hlaðvarpið „Nær dauða en lífi“ og ræddi um mikilvægi stuðnings í sorgarferlinu.
„Það er mjög erfitt að vera syrgjandi og taka upp símann og kalla eftir aðstoð. Það er miklu betra ef hún býðst okkur,“ segir Ína og hvetur þá sem eiga syrgjandi ástvini að vera duglegir við að bjóða fram aðstoð sína, þá sérstaklega nú þegar jólin eru á næsta leyti.
„Þú ert að missa sálufélaga þinn og oft einhvern veginn helminginn af sjálfum þér,“ lýsir Ína Lóa makamissinum en árið 2012 lést eiginmaður hennar og barnsfaðir eftir stutta en erfiða baráttu við æxli í heila.
„Ég man þessar setningar sem maður fékk að heyra svo oft: „Þú ert svo dugleg og þú ert svo mikil hetja,“ og allt þetta en það var ekkert annað í boði. Mig langaði stundum bara til að fá að vera í friði og helst bara setja sængina upp fyrir haus.“
Í samstarfi við mbl.is hefur Sorgarmiðstöð gefið út hlaðvarpið Sorg og Missi. Fyrsti þátturinn kallast “Jólin og sorgin” og er þar rætt við Ínu Lóu framkvæmdastjóra Sorgarmiðstöðvar. Fer Ína Lóa í gegnum hvað Sorgarmiðstöð gerir fyrir syrgjendur og hvaða ráð er gott að hafa í huga um jólin.
Ína Lóa Sigurðardóttir, framkvæmdastýra Sorgarmiðstöðvarinnar, var gestur Berglindar Guðmundsdóttur í Dagmálum á dögunum þar sem hún sagði frá reynslu sinni af ástvinamissi sem hún hefur unnið úr í gegnum árin og náð að öðlast jafnvægi á ný með sorgina sér við hlið.
Karólína Helga Símonardóttir mannfræðingur varð ekkja 33 ára þegar maður hennar, Daði Garðarsson, varð bráðkvaddur, aðeins 35 ára gamall. Í þessu viðtali ræðir hún um hvernig líf hennar og barnanna hennar fjögurra umturnaðist á einu augabragði. Með góðri hjálp hefur hún unnið úr sorginni og er í dag stjórnarformaður Sorgarmiðstöðvar.
Guðrún Ágústsdóttir, hópstjóri hjá Sorgarmiðstöðinni og fyrrverandi forseti borgarstjórnar, missti eiginmann sinn, Svavar Gestsson, fyrrverandi ráðherra og sendiherra, í janúar 2021. Hún segir að lífið snúist á hvolf við fráfall maka. Hún segir sorgina aldrei fara og vera alltaf til staðar.
Í útvarpsþættinum Lífið eftir vinnu, að eldast á Íslandi, sem er á dagskrá Rásar 1 á föstudögum, er fjallað um ýmsar hliðar þess að eldast með reisn svo sem fjármál og mismunandi búsetuform.
Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir verkefna- og fagstjóri hjá Sorgarmiðstöð fjallar í þessari grein um vöntun á samræmdum stuðningi fyrir þau sem missa skyndilega og vilja Sorgarmiðstöðvar að vinna að því að faglegur stuðningur standi fólki til boða innan 48 klst frá missi. Fjallað var um verkefnið Hjálp48 á ráðstefnu Sorgarmiðstöðvar um skyndilegan missi þann 31. ágúst 2022 og er ráðstefnan nú aðgengileg á heimasíðu okkar undir “Útgefið efni” og “Erindi og ráðstefnur”. Fjallað er um Hjálp48 verkefnið á tímasteningunni 2:01:04.
LÍFSGÆÐASETUR Í ST. JÓ
SUÐURGATA 41, 220 HAFNARFJÖRÐUR
sorgarmidstod@sorgarmidstod.is
Tel: 551 4141
ID Number: 521118-0400
Bank info: 0513-26-009753
Supported by the Directorate of Health
Sponsored by the City of Reykjavík