Að missa ástvin er mikið áfall og ein helsta ástæða fyrir félagslegri einangrun og einmanaleika, þá sérstaklega meðal eldra fólks. Eftirlifandi lýsa gjarnan upplifun sinni þannig að lífið fari á hvolf. Ekkert sé eins og áður.
Þann 18. september ætlar Guðrún Ágústsdóttir að vera með fræðsluerindi um einmanaleikann eftir ástvinamissi og þá sérstaklega eftir makamissi.
Erindið er haldið í tilefni af Gulum september sem er vitundarátak gegn sjálfsvígum. Í Gulum september er lögð áhersla á að auka meðvitund fólks um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna með kærleika, aðgát og umhyggju að leiðarljósi.
Sorgarúrvinnsla er mikilvægur þáttur í velferð og geðheilbrigði. Þrátt fyrir að sorgin geti verið mjög sársaukafull þá er hún mikilvægt skref í áttina að því bataferli sem er nauðsynlegt eftir missi.
Erindið hefst kl. 19:30 og verður í sal í Lífsgæðasetrinu, Hafnarfirði.
Guðrún var formaður Öldungaráðs Reykjavíkur 2015–2018 og svo ráðgjafi hjá Félagi eldri borgara í Reykjavík og Landssambandi eldri borgara. Í því starfi einbeitti hún sér meðal annars að einmanaleika aldraðra, en þar er makamissir áhættuþáttur. Guðrún missti maka sinn í janúar 2021 og hefur sagt frá þeirri reynslu í viðtölum. Þá samdi hún bæklinginn Við andlát maka sem Landssamband eldri borgara gaf út 2021. Guðrún leiðir stuðningshópastarf hjá Sorgarmiðstöð fyrir þau sem missa maka á efri árum.
Erindið er gjaldfrjálst en mikilvægt er að skrá sig svo við getum haldið utan um fjölda.
Skráningarhlekkur er aðgengilegur hér.