Tendrað verður á Sorgartrénu á Akureyri laugardaginn 6. desember.
Við munum ganga saman að trénu frá Kaffi Lyst í Lystigarðinum kl. 15:30.
Sönghópur úr Gospelkór Glerárkirkju mun syngja nokkur lög.
Hugmyndin með Sorgartrénu er að öll þau sem hafa misst ástvin geti sest undir tréð og minnst þeirra sem fallin eru frá, á þessum ljúfsára tíma sem jólin eru fyrir syrgjendur. Sorgartrénu er einnig ætlað að vekja athygli á stöðu syrgjenda sem eiga um sárt að binda á þessum tíma árs. Öll eru því velkomin, hvort sem þau vilji sýna stuðning eða vilji minnast.
Athugið að Lystigarðurinn biður fólk um að passa að stíga ekki á plöntur í garðinum