11/02/2026
Akureyri, Glerárgata 24

Að missa ástvin skyndilega – Akureyri

Það er sársaukafullt að missa ástvin skyndilega. Okkur er ýtt út í úrvinnslu tilfinninga sem virðast oft á tíðum stjórnlausar, sérstaklega í byrjun. Við þurfum mikinn stuðning og utanumhald frá okkar nánustu og jafnvel fagaðila líka. Við þurfum að hlúa vel að okkur og reyna nýta þau bjargráð sem geta gagnast okkur í sorgarferlinu.

Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir, hjúkrunarfræðingur og verkefnastjóri Lífsbrúar flytur erindið „Að missa ástvin skyndilega”. Hún hefur sjálf reynslu af skyndilegum ástvinamissi. Í erindinu er farið yfir helstu atriði sem nýtast í sorgarúrvinnslunni og hvernig við getum styrkt okkur eða okkar nánustu sem best í því ferli.

Erindið verður haldið í húsi Krabbameinsfélags Akureyris og nágrennis að Glerárgötu 24, 3. hæð
Erindið hefst kl. 18


Gjaldfrjálst er á erindið en við biðjum alla um að skrá sig á það á þessu skráningaskjali hér.

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira