11/05/2026
Rauðavatn

Skref fyrir skref – ganga um Rauðavatn

Gönguhópur Sorgarmiðstöðvar SKREF fyrir SKREF býður upp á skipulagðar göngur reglulega. Þetta eru alltaf léttar göngur í nálægð við höfuðborgarsvæðið.

Mánudaginn 11. maí ætlum við að ganga um Rauðavatn & jafnvel inn í Rauðavatnsskóg.

Mæting er kl. 17:15. Lagt verður af stað stundvíslega kl. 17:30.

Það er nauðsynlegt að skrá sig hér og er lágmarksþátttaka nauðsynleg til að gangan verði.

Ef þið hafið einhverjar fyrispurnir eða þurfið að tilkynna forföll má hafa samband á sorgarmidstod@sorgarmidstod.is

Að nýta náttúruna og útiveru gefur okkur orku og losar um spennu. Göngur eru því hjálplegar þegar við tökum skrefin framávið í sorgarferlinu.

Regína Sigurgeirsdóttir fer fyrir göngunni.

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira