Samtalsþjónusta

Sorgarmiðstöð býður upp á stuðningsviðtal með fagaðila þar sem syrgjendur og aðstandendur geta fengið hlustun, stuðning og ráðgjöf eftir missi.

Þjónustan er hugsuð sem stoðþjónusta við kjarnaþjónustu Sorgarmiðstöðvar, jafningjastuðning og stuðningshópastarf Sorgarmiðstöðvar. Þar að auki getur verið hjálplegt að eiga samtal við fagaðila til að skoða hvaða skref henta best í sorgarúrvinnslu hvers og eins.

Samtalsþjónusta Sorgarmiðstöðvar er ekki hugsuð sem endurtekin viðtöl.

Bókanir Hægt er að bóka viðtal í gegnum skrifstofu Sorgarmiðstöðvar:

Gjald Staðfestingargjald fyrir hvert viðtal er 5.000 kr. Greiðsluhlekkur er sendur í kjölfar bókunar.

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira