Námskeiðið er í boði Sorgarmiðstöðvar en nauðsynlegt er að skrá sig á námskeiðið og greiða staðfestingargjald til að tryggja þátttöku. Skráning hér
Námskeiðið er tvær helgar:
29. og 30. ágúst
12. og 13. september
Aldur: 6–15 ára
Tímasetning: 11:00–13:30. Boðið er upp á hádegishressingu.
Fyrsta dag námskeiðs (29. ágúst) er óskað eftir að foreldrar/forráðamenn séu á staðnum og taki þátt. Þeim er einnig boðið á fræðsluna „Að styðja barn/ungling í sorg“ þennan dag.
Nánari lýsing á námskeiðinu
Námskeiðið er ætlað börnum og unglingum sem hafa misst ástvin. Markmiðið er að skapa öruggt, hlýlegt og styðjandi rými þar sem þátttakendur fá tækifæri til að tjá sig, skapa, upplifa og efla bjargráð í gegnum leik, hreyfingu og skapandi verkefni.Á námskeiðinu er lögð áhersla á jákvæða uppbyggingu og styrkingu í sorgarferlinu. Unnið er með þemu á borð við öryggi, tengsl og traust, tilfinningar og tjáningu, styrkleika og bjargráð, sem og minningar og von.Jafnframt gefst þátttakendum tækifæri til að hitta önnur börn og unglinga sem hafa upplifað missi og deila reynslu.Engin krafa er gerð um að deila persónulegri reynslu og öll þátttaka fer fram á forsendum hvers og eins. Hópunum er skipt eftir aldri og lögð er áhersla á að mæta þörfum hvers barns með virðingu og hlýju.
Umsjón námskeiðs
Ína Lóa Sigurðardóttir
Ína Lóa er kennari að mennt og starfaði í tíu ár sem umsjónarkennari á yngsta- og miðstigi. Hún hefur menntað sig á sviði sálgæslu, markþjálfunar, sáttamiðlunar og stundar mastersnám í geðheilbrigði og áföllum ásamt því að vera í námi í listmeðferðarfræði.Ína Lóa er einn af stofnendum Ljónshjarta og Sorgarmiðstöðvar og hefur um árabil unnið að fræðslu, stuðningi og hagsmunamálum syrgjenda. Hún er jafnframt hugmyndasmiður og einn af höfundum sjónvarpsþáttanna MISSIR.Ína hefur einnig persónulega reynslu af missi. Hún missti sitt fyrsta barn á meðgöngu árið 2002 og eiginmann sinn eftir langvarandi veikindi árið 2012, þegar börn þeirra voru 5 og 9 ára.
Lilja Eivor Gunnarsd. Cederborg
Lilja Eivor er með B.A.-gráðu í tómstunda- og félagsmálafræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur sinnt fjölbreyttum störfum með börnum og unglingum. Seinusta áratug hefur hún starfað hjá fyrirtækinu KVAN m.a. sem þjálfari á sjálfstyrkingar námskeiðum fyrir börn og unglinga. Lilja hefur jafnframt reynslu af störfum við viðkvæm mál, bæði af starfi á Landspítalanum með ungmennum í fíkniefnavanda og í grunnskólum landsins þar sem hún hefur stutt stjórnendur og starfsfólk í eineltis- og samskiptamálum nemenda. Samhliða störfum sínum hefur Lilja haldið úti hlaðvarpinu “Sorgarkastið” og gaf hún út barnabókina “Gunnar í Vinalandi” árið 2025 um son sinn Gunnar Unnstein sem lést 4 ára gamall árið 2023.