Þegar við upplifum áfall eins og ástvinamissi er flestum hjálplegt að komast í kynni við og hitta aðra sem eru í  sömu sporum, finna skilning og stuðning þeirra sem þekkja af eigin reynslu hvað við er að etja. 
Sorgarmiðstöð hefur ákveðið að bjóða upp á opið hús og djúpslökun einu sinni í mánuði. Þar gefst syrgjendum tækifæri til að slaka vel á, hlaða batteríin og hitta aðra sem deila reynslu.  Ákveðið umræðuefni verður tekið fyrir hverju sinni. 
Nánari lýsing:  Yoga Nidra hefst kl. 19:30 í sal Sorgarmiðstöðvar Lunganu og mun Sigrún Jónsdóttir Yoga Nidra kennari leiða hópinn inn í notalega djúpslökun. Óskað er eftir skráningu hér 
Samtal um ástvinamissi hefst kl. 19:50 inn í litla samverurými Hjartanu. 
Verið innilega velkomin
Boðið er upp á kaffi og með því.
Hefst kl 19:30