Í LJÓSI AÐSTÆÐNA HEFUR VERIÐ TEKIN ÁKVÖRÐUN UM AÐ FRESTA ÞESSU HÓPASTARFI
Sorgarmiðstöð býður nú upp á hópastarf þar sem fólki gefst kostur á að takast á við gamla eða óuppgerða sorg. Alltof margir hafa ekki náð að vinna úr sorg sinni og gæti því hópastarf sem þetta nýst vel.
Í hverjum hópi eru um tíu manns sem hittast vikulega og eru tveir fagaðilar sem halda utan um hvern hóp. Það kostar ekkert að koma í hópastarf.
Hópastarfið er í 4 vikur og hefst 8. apríl skráning hér
Nauðsynlegt er að skrá sig í hópastarfið til að tryggja þátttöku. Hægt er að skrá sig hér
Hópastarfið er frá kl. 20:00 – 21:30