Berglind Arnardóttir upplifði mesta harm allra foreldra þegar sonur hennar Jökull Frosti Sæberg lést af slysförum árið 2021, einungis fjögurra ára gamall. Í kjölfarið hófst langt og erfitt sorgarferli sem leiddi meðal annars til þess að Berglind byrjaði að taka þátt í starfi Sorgarmiðstöðvar og fann þannig leið til að vinna úr eigin sorg, vaxa og hjálpa öðrum.
Viðtal við Arnmund Ernst Bachmann um móðurmissinn, sorgina, listina og lífið.
Matthildur Bjarnadóttir, verkefnastjóri Arnarins, skrifar um sorg barna.
Í þessari grein skrifar Erna Guðmundsdóttir lögfræðingur um réttindi við andlát maka.
Birna Dröfn Jónasdóttur, blaðakona, hópstjóri og stjórnarmeðlimur hjá Sorgarmiðstöðinni kom í hlaðvarpið „Nær dauða en lífi“ og ræddi um mikilvægi stuðnings í sorgarferlinu.
„Það er mjög erfitt að vera syrgjandi og taka upp símann og kalla eftir aðstoð. Það er miklu betra ef hún býðst okkur,“ segir Ína og hvetur þá sem eiga syrgjandi ástvini að vera duglegir við að bjóða fram aðstoð sína, þá sérstaklega nú þegar jólin eru á næsta leyti.
„Þú ert að missa sálufélaga þinn og oft einhvern veginn helminginn af sjálfum þér,“ lýsir Ína Lóa makamissinum en árið 2012 lést eiginmaður hennar og barnsfaðir eftir stutta en erfiða baráttu við æxli í heila.
„Ég man þessar setningar sem maður fékk að heyra svo oft: „Þú ert svo dugleg og þú ert svo mikil hetja,“ og allt þetta en það var ekkert annað í boði. Mig langaði stundum bara til að fá að vera í friði og helst bara setja sængina upp fyrir haus.“
Í samstarfi við mbl.is hefur Sorgarmiðstöð gefið út hlaðvarpið Sorg og Missi. Fyrsti þátturinn kallast “Jólin og sorgin” og er þar rætt við Ínu Lóu framkvæmdastjóra Sorgarmiðstöðvar. Fer Ína Lóa í gegnum hvað Sorgarmiðstöð gerir fyrir syrgjendur og hvaða ráð er gott að hafa í huga um jólin.
Ína Lóa Sigurðardóttir, framkvæmdastýra Sorgarmiðstöðvarinnar, var gestur Berglindar Guðmundsdóttur í Dagmálum á dögunum þar sem hún sagði frá reynslu sinni af ástvinamissi sem hún hefur unnið úr í gegnum árin og náð að öðlast jafnvægi á ný með sorgina sér við hlið.
LÍFSGÆÐASETUR Í ST. JÓ
SUÐURGATA 41, 220 HAFNARFJÖRÐUR
sorgarmidstod@sorgarmidstod.is
Sími: 551 4141
Kennitala: 521118-0400
Reikningsnúmer: 0513-26-009753
Landlæknisembættið er verndari Sorgarmiðstöðvar