Lokað frá 23. desember til 3. janúar. Allar pantanir sem berast á þeim tíma verða afgreiddar eftir 3. janúar. Gleðilega hátíð

24/05/2021
Sorgarmiðstöð - Lífsgæðasetur st. Jó

Opið hús og Yoga Nidra djúpslökun

Þegar við upplifum áfall eins og ástvinamissi er flestum hjálplegt að komast í kynni við og hitta aðra sem eru í sömu sporum, finna skilning og stuðning þeirra sem deila reynslu.
Sorgarmiðstöð býður upp á opið hús og djúpslökun. Þar gefst syrgjendum tækifæri til að mæta í Yoga Nidra djúsplökun og eiga svo gott samtal á eftir við aðra sem deila reynslu af ástvinamissi. Ákveðið umræðuefni er tekið fyrir hverju sinni. Frjálst er að mæta bæði í djúpslökun og spjall eða annað hvort.
Þeir sem ætla að mæta í Yoga Nidra djúpslökun verða að skrá sig þar sem það er takmarkaður fjöldi.

 Skráning hér

Nánari lýsing:
Yoga Nidra mæting kl. 19:15 í Lungað sal Sorgarmiðstöðvar. Sigrún Yoga Nidra kennari mun taka á móti ykkur og leiða hópinn inn í notalega djúpslökun. Gengið er inn í salinn hljóðlega og eiga allir að koma sér vel fyrir á dýnu. Þið þurfið að koma með hlýtt teppi, undirlag á dýnuna og kodda undir höfuð og jafnvel fætur. Augnhvílu er líka gott að koma með eða eitthvað annað sem hægt er að leggja yfir augun (dýpkar slökunina). Einnig er gott að mæta í hlýjum og þægilegum fatnaði.
Við gætum að að sóttvörnum og ætlum að vera með grímu þegar við komum í hús, sem má taka af þegar við erum lögst.

Samtal um ástvinamissi hefst svo kl. 20:00 í minni sal Sorgarmiðstöðvar Hjartanu, á sömu hæð.

Það kostar ekkert á þennan viðburð og tökum við vel á móti ykkur

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira