Lokað frá 23. desember til 3. janúar. Allar pantanir sem berast á þeim tíma verða afgreiddar eftir 3. janúar. Gleðilega hátíð

Foreldamissir

Að missa foreldri er án efa eitthvert mesta áfall sem barn eða ungmenni getur orðið fyrir. Oft fylgir slík reynsla þeim ævina á enda. Það er því nauðsynlegt að vinna vel úr foreldramissi svo áfallið verði ekki hamlandi seinna meir. Fagleg aðstoð, fjölskyldan, vinir og að hitta aðra sem deila reynslu er oft mikil hjálp.

Sorgarmiðstöð býður upp á námskeið og hópastarf fyrir börn og ungmenni sem hafa misst foreldri.

 Nauðsynlegt er að skrá sig  á námskeið/í hópastarf til að tryggja þátttöku. 

 

Börn og ungmenni 6-15 ára 

Námskeiðið er fjóra laugardaga  (vegna COVID eru nýjar dagsetningar í skoðun)

Nánari lýsing:  Á námsskeiðinu fá allir tækifæri til að skapa, upplifa, og tjá sig í gegnum leik og verkefni í öruggu og styðjandi umhverfi. Hópunum er aldursskipt og er lögð áhersla á að mæta þörfum hópsins og hvers og eins innan hans.
Námskeiðið stuðlar að jákvæðri uppbyggingu og verður unnið sérstaklega með eftirfarandi þætti:

TRAUST  – Efnisþættir: Sjálfstraust, hugrekki, að treysta öðrum, að treysta aðstæðum.
TENGSL – Efnisþættir: Félagslegur og tilfinningalegur lærdómur, samskipti, samvinna, tjáning og samkennd.
SJÁLFSÞEKKING – Efnisþættir: Aukin meðvitund varðandi færni, líðan og samskipti, yfirfærsla á daglegt líf, jákvæð reynsla.

Elísabet Lorange, listmeðferðarfræðingur og Helga Jóna Sigurðardóttir, iðjuþjálfi og fjölskyldumeðferðafræðingur halda utan um námskeiðið en þær hafa báðar mikla reynslu af vinnu með börnum og sinna einnig hópastarfi barna í Ljósinu. 
Hægt er að senda þeim tölvupóst á elisabet.lorange@gmail.com ef óskað er eftir frekari upplýsingum.

Námskeiðið er frá kl. 11-14 og er boðið upp á hádegishressingu.

 

Ungmenni 16-18 ára (menntaskólaaldur)

Er boðið upp á hópastarf að kvöldi til á virkum degi. Farið verður af stað með hóp um leið og lágmarks þátttöku er náð. Því er um að gera að skrá sig sem fyrst.

Skráning í hópastarf

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira