Áframhaldandi samstarf Sorgarmiðstöðvar og Hafnarfjarðarbæjar

Frá upphafi hefur Hafnarfjarðarbær staðið þétt við bakið á Sorgarmiðstöð með aðstöðu í Lífsgæðasetri st. Jó. Sorgarmiðstöð fer afar vel við starfsemina sem ríkir  þar enda stuðlar setrið að bættum lífsgæðum fólks þar sem hlýja og umhyggla umlykur alla.
Berglind Arnardóttir, stjórnarformaður Sorgarmiðstöðvar og Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar hittust ásamt framkvæmdastjóra Sorgarmiðstöðvar Ínu Lóu Sigurðardóttur og undirrituðu framlengdan samstarfssamning til ársins 2028 um áframhaldandi veru Sorgarmiðstöðvar í húsinu.

Þjónusta Sorgarmiðstöðvar verður því áfram í Lífsgæðasetri st. Jó og mun Sorgarmiðstöð einnig bjóða áfram fræðslu út í grunn og leikskóla bæjarins og aðrar stofnanir.

Við erum einstaklega þakklát fyrir þetta samstarf og hlökkum mikið til næstu ára í Lífsgæðasetrinu.

Hugljúf stund í leiðiskransagerð
Mánudaginn 15. desember buðum við upp á leiðiskransanámskeið fyrir syrgjendur í Lífsgæðasetrinu. Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir kom til okkar líkt og fyrri ár og kenndi helstu ...
Styrkur í jólaþorpinu
Helgina 5.-7. desember var Sorgarmiðstöð með bás í jólaþorpinu í miðbæ Hafnarfjarðar. Þetta er annað árið sem við prófum að vera með viðveru í jólaþorpinu ...
Sorgartrén tendruð á aðventunni
Sorgartrén urðu tvö í fyrra, eitt stendur nú í Hellisgerði í Hafnarfirði og annað í Lystigarðinum á Akureyri. Þau voru bæði tendruð við fallegar athafnir ...
Samvera hópstjóra og jafningja í nóvember
Mínigarðurinn tók rausnarlega á móti Sorgarmiðstöð fyrstu vikuna í nóvember þar sem hópstjórar og jafningjar hittust og áttu góða kvöldstund saman. Í byrjun kvöldsins fór ...
Breyttur opnunartími á skrifstofu Sorgarmiðstöðvar
Opnunartími og símatími skrifstofu hefur nú verið lengdur og nú er hægt að nálgast okkur alla virka daga milli kl. 09 og 16 á skrifstofu Sorgarmiðstöðvar ...
 500 vinir í raun
Sorgarmiðstöð hefur nú náð þeim frábæra áfanga að eignast 500 vini í raun. Vinir í raun eru mánaðarlegir styrktaraðilar Sorgarmiðstöðvar en með þeirra ómetanlega framlagi ...

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira