
Guðrún Eggerts Þórudóttir er prestur og sálgætir að mennt og starfar sem sjálfstætt starfandi prestur hjá Kærleikshorninu. Þar sem hún veitir alla þjónustu sem kemur að preststarfinu.
Guðrún stofnaði Kærleikshornið í nóvember 2023. Hún hefur starfað hjá Þjóðkirkjunni bæði sem sóknarprestur á Ólafsfirði og við Vídalínskirkju. Guðrún útskrifaðist frá Emerson Collage 2004 sem Waldorf kennari að mennt og hefur starfað með börnum um langt skeið og fjölskyldum þeirra. Einnig hefur Guðrún starfað á sambýlum og við þjónustu aldraðar innan kirkjunnar. Guðrún hóf störf hjá Óháða söfnuðinum 1. maí 2025 og er Sóknarprestur safnaðarins.
Guðrún missti móður sína skyndilega 2013 einnig missti hún ungann föðurbróðir sinn úr sjálfsvígi 16 ára gömul.