Kristín er markþjálfi, sambands – markþjálfi, Advanced Cranio meðferðaraðili (Höfuðbeina og spjaldhryggjarmeðferðaraðili) og fyrirlesari. Hún var í stjórn Krafts og tók þátt í herferðum fyrir félagið ásamt því að vera ein af forsprökkum armbandanna “Lífið er núna”. Hún hefur meðal annars haldið námskeið og fyrirlestra, bæði fyrir Kraft og Ljósið, um samskipti, nánd og breytingar. Einnig hefur hún haldið fjöldan allan af fyrirlestrum og námskeiðum.

Kristín sinnir stuðningshópastarfi hjá Sorgarmiðstöð fyrir ekkjur og ekkla. Hún missti manninn sinn úr krabbameini árið 2017.