Lilja Eivor er með B.A.-gráðu í tómstunda- og félagsmálafræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur sinnt fjölbreyttum störfum og býr yfir víðtækri reynslu á sviði markaðs- og kynningarmála sem og verkefna- og viðburðastjórnunar. Lilja hefur jafnframt reynslu af störfum við viðkvæm mál, bæði af starfi á Landspítalanum með ungmennum í fíkniefnavanda og í grunnskólum landsins þar sem hún hefur stutt stjórnendur og starfsfólk í eineltis- og samskiptamálum nemenda. Samhliða störfum sínum hefur Lilja haldið úti hlaðvarpinu “Sorgarkastið” og gaf hún út barnabókina “Gunnar í Vinalandi” árið 2025 um son sinn Gunnar Unnstein sem lést 4 ára gamall árið 2023.