
Sindri Geir er með embættispróf í guðfræði og starfar sem prestur á Akureyri. Hann er menntaður sáttamiðlari og stundar nú nám í IFS áfallameðferð. Sindri tók þátt í að hefja markvisst stuðningshópastarf fyrir syrgjendur á norðurlandi árið 2017 og hefur leitt hópa vegna makamissis, barnsmissis, vegna missis í sjálfsvígi og missis í fíknidauða, fyrst á vegum Samhygðar og nú fyrir Sorgarmiðstöð.