
Sunna Miriam starfar sem Yin yoga kennari, öndunar- og kuldaþjálfi og gusumeistari. Hún nam kulda og öndunarþjálfun hjá hollendingnum Wim Hof og hefur leitt námskeið og hópa þar sem unnið er með líkama og huga í gegnum öndun, kulda, núvitund og sánatíma með sjóböðum á milli lota.
Í eigin lífsreynslu hefur Sunna fundið aðferðirnar vera öflugt verkfæri til að takast á við sorg, streitu og kvíða. Hún missti föður sinn árið 1999, þá 21 árs gömul, og móður sína árið 2016. Sú reynsla hefur mótað sýn hennar á sorgarferlið og mikilvægi þess að fá stuðning og rými til að vinna úr missi.
Sunna sinnir stuðningshópastarfi fyrir þau sem misst hafa foreldri og leggur áherslu á hlýju, nærveru og öryggi í starfi sínu. Áður starfaði hún um árabil hjá Icelandair