Námskeið í haustkransagerð

Í október bauð Sorgarmiðstöð upp á námskeið í haustkransagerð í samstarfi við Ingunni Björk Vilhjálmsdóttur kransagerðakonu. Ingunn kom og kenndi okkur helstu handbrögðin við að útbúa fallega haustkransa og gaf vinnu sína til Sorgarmiðstöðvar.
Aðsóknin var mjög góð og fannst öllum stundin vera kærkomin tilbreyting en eins og segir í bjargráðum okkar að þá er nauðsynlegt að hvíla sig frá sorginni, dreifa huganum og gera eitthvað allt annað. Gleðin var mikil og var óskað eftir að þessi viðburður yrði aftur að ári.

Við þökkum öllum fyrir þátttökuna og einstaklega ánægjulega samveru

Vinnustofa Sorgarmiðstöðvar 2026
Þann 25. september hittist hópur aðila úr ýmsum áttum til að taka þátt í vinnustofu sem var undirbúningur fyrir komandi stefnumótun Sorgarmiðstöðvar. Á fundinum var ...
Gulur september
Opnunarviðburður Sorgarmiðstöð tekur virkan þátt í skipulagningu og viðburðahaldi fyrir Gulan september, ásamt fjölmörgum stofnunum og félagasamtökum sem sameinast í að efla geðrækt og sjálfsvígsforvarnir. ...
Samhugur einkenndi Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka
Reykjavíkurmaraþonið er einn af hápunktum ársins hjá okkur í Sorgarmiðstöð. Á hverju ári koma saman hlauparar sem hlaupa iðjulega fyrir ástvin sem þau hafa misst ...
Þorlákur FC tileinkar treyju ársins Sorgarmiðstöð
Knattspyrnufélagið Þorlákur Football Club hefur frá stofnun sinni verið meira en hefðbundið fótboltafélag. Félagið varð til úr sorg, vináttu og löngun til að halda minningu ...
Bækur fyrir börn í sorg
Sorgarmiðstöð fékk kærkomna heimsókn frá Heiðrúnu Helgu Bjarnadóttur Backsem tók að sér að þýða og flytja inn bækur og kennsluefni fyrir börn í sorg. Efnið ...
Sorgarhlaupið
Fyrsta Sorgarhlaupið tókst afar vel og erum við innilega þakklát öllum þeim sem tóku þátt, mættu á svæðið og komu að skipulagi og uppsetningu viðburðarins. ...

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira