Kærkominn styrkur í desember frá Kvennastúkum Akureyris

Kvennastúkurnar Auður og Laufey á Akureyri færðu Hjálp48 – Sorgarmiðstöð á Akureyri styrk í desember að fjárhæð kr. 1.230.000 til þess að þýða og gefa út stuðningsefni fyrir vitni, syrgjendur og viðbragðsaðila. Einnig er styrkurinn veittur til þess að veita aðstandendum sem misst hafa í sjálfsvígi aukinn stuðning. Sorgarmiðstöð þakkar Kvennastúkunum hjartanlega fyrir höfðinglegan stuðning […]
Hugljúf stund í leiðiskransagerð

Mánudaginn 15. desember buðum við upp á leiðiskransanámskeið fyrir syrgjendur í Lífsgæðasetrinu. Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir kom til okkar líkt og fyrri ár og kenndi helstu handbrögðin við að útbúa fallega kransa. Eitt af bjargráðunum í sorg er að hvíla sig frá sorginni, dreifa huganum og gera eitthvað sem gleður og er uppbyggjandi. Annað bjargráð er svo […]
Styrkur í jólaþorpinu

Helgina 5.-7. desember var Sorgarmiðstöð með bás í jólaþorpinu í miðbæ Hafnarfjarðar. Þetta er annað árið sem við prófum að vera með viðveru í jólaþorpinu og gekk það með eindæmum vel eins og fyrri árið. Í ár seldum við heitt súkkulaði en ágóðinn sem kom af sölunni mun fara í að styrkja starf Sorgarmiðstöðvar. Barbara […]