SÍMASÖFNUN

Sorgarmiðstöð er með símasöfnun í gangi um þessar mundir.

Nú erum við að safna fé fyrir stuðningshópastörfunum en það hefur orðið gífurleg aukning í þjónustuna undanfarið ár. Sorgarmiðstöð hefur þurft að auka við mannskapinn í hópstjóravinnunni um helming og fjöldi þeirra sem sótti stuðningshópastarfið í ár voru um 280 manns en það er aukning um tæplega helming frá því árinu áður.

Tekið skal fram að Sorgarmiðstöð byggir tilveru sína einungis á styrkjum og því er þinn stuðningur okkur afar mikilvægur. 

Við sendum okkar bestu þakkir til allra sem leggja Sorgarmiðstöð lið og hjálpa okkur við að byggja upp starfsemina.

Sorgartrén tendruð á aðventunni
Sorgartrén urðu tvö í fyrra, eitt stendur í Hellisgerði í Hafnarfirði og annað í Lystigarðinum á Akureyri. Þau voru bæði tendruð við fallegar athafnir síðastliðna ...
Samvera hópstjóra og jafningja í nóvember
Mínigarðurinn tók rausnarlega á móti Sorgarmiðstöð fyrstu vikuna í nóvember þar sem hópstjórar og jafningjar hittust og áttu góða kvöldstund saman. Í byrjun kvöldsins fór ...
Breyttur opnunartími á skrifstofu Sorgarmiðstöðvar
Opnunartími og símatími skrifstofu hefur nú verið lengdur og nú er hægt að nálgast okkur alla virka daga milli kl. 09 og 16 á skrifstofu Sorgarmiðstöðvar ...
 500 vinir í raun
Sorgarmiðstöð hefur nú náð þeim frábæra áfanga að eignast 500 vini í raun. Vinir í raun eru mánaðarlegir styrktaraðilar Sorgarmiðstöðvar en með þeirra ómetanlega framlagi ...
Hjálp48 verkefnið farið af stað á Akureyri
Þjálfun fyrir Hjálp48 teymi Sorgarmiðstöðvar á Akureyri  fór fram dagana 3. og 4. september  í Glerárkirkju. Þeir sem að stóðu að baki þjálfuninni voru Guðrún ...
5,7 milljónir söfnuðust
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka var haldið laugardaginn 23. ágúst síðastliðinn. Á þessu ári var metskráning og einnig var söfnunarmetið slegið á hlaupastyrkur.is. Að sama skapi er öhætt ...

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira