Sorgartréð tendrað í Hellisgerði

Tendrað verður á Sorgartrénu í Hellisgerði þann 26. nóvember. Hist verður í Lífsgæðasetrinu St. Jó, Hafnarfirði, kl. 17, þar sem stjórnarformaður Sorgarmiðstöðvar fer með nokkur orð um jólin og sorgina. Síðan verður gengið saman í Hellisgerði þar sem Kvennakór Kópavogs tekur nokkur lög áður en kveikt verður á Sorgartrénu.

Hugmyndin með Sorgartrénu er að öll þau sem hafa misst ástvin geti sest undir tréð og minnst þeirra sem fallin eru frá, á þessum ljúfsára tíma sem jólin eru fyrir syrgjendur. Sorgartrénu er einnig ætlað að vekja athygli á stöðu syrgjenda sem eiga um sárt að binda á þessum tíma árs.

Hugljúf stund í leiðiskransagerð
Mánudaginn 15. desember buðum við upp á leiðiskransanámskeið fyrir syrgjendur í Lífsgæðasetrinu. Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir kom til okkar líkt og fyrri ár og kenndi helstu ...
Styrkur í jólaþorpinu
Helgina 5.-7. desember var Sorgarmiðstöð með bás í jólaþorpinu í miðbæ Hafnarfjarðar. Þetta er annað árið sem við prófum að vera með viðveru í jólaþorpinu ...
Sorgartrén tendruð á aðventunni
Sorgartrén urðu tvö í fyrra, eitt stendur nú í Hellisgerði í Hafnarfirði og annað í Lystigarðinum á Akureyri. Þau voru bæði tendruð við fallegar athafnir ...
Samvera hópstjóra og jafningja í nóvember
Mínigarðurinn tók rausnarlega á móti Sorgarmiðstöð fyrstu vikuna í nóvember þar sem hópstjórar og jafningjar hittust og áttu góða kvöldstund saman. Í byrjun kvöldsins fór ...
Breyttur opnunartími á skrifstofu Sorgarmiðstöðvar
Opnunartími og símatími skrifstofu hefur nú verið lengdur og nú er hægt að nálgast okkur alla virka daga milli kl. 09 og 16 á skrifstofu Sorgarmiðstöðvar ...
 500 vinir í raun
Sorgarmiðstöð hefur nú náð þeim frábæra áfanga að eignast 500 vini í raun. Vinir í raun eru mánaðarlegir styrktaraðilar Sorgarmiðstöðvar en með þeirra ómetanlega framlagi ...

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira