Styrkur í jólaþorpinu

Helgina 5.-7. desember var Sorgarmiðstöð með bás í jólaþorpinu í miðbæ Hafnarfjarðar. Þetta er annað árið sem við prófum að vera með viðveru í jólaþorpinu og gekk það með eindæmum vel eins og fyrri árið.

Í ár seldum við heitt súkkulaði en ágóðinn sem kom af sölunni mun fara í að styrkja starf Sorgarmiðstöðvar. Barbara Kaffibar ákvað að þessu sinni að slást í lið með okkur og gáfu þeir okkur heita súkkulaðið sitt í styrk svo við gætum boðið gangandi vegfarendum í þorpinu upp á drykk í hæsta gæðaflokki. Við þökkum þeim afar vel fyrir en súkkulaðisalan gekk framar vonum og mun ágóðinn af henni nýtast heldur betur vel.

Við náðum einnig að gefa smá forskot á nýja vöru hjá okkur í jólaþorpinu en það er Hjartaknúsið sem er skapað í samvinnu við Valdísi Ólafsdóttur keramikhönnuð sem hannar undir merkinu Dísa – Litlu hlutir lífsins.

Hjartaknúsið okkar er lyklakippa með fallegu keramik-hjarta og skilaboðunum “knús”. Það er því hægt að bera faðminn og hlýjuna með sér í gegnum daginn, eða gefa öðrum knús sem á þurfa að halda. Hjartaknúsið mun fara í vefverslun og frekari sölu eftir áramót.

Styrkur frá Nemendafélagi Menntaskóla Borgarfjarðar
Sorgarmiðstöð barst á dögunum afar kærkomin styrkur frá nemendafélagi Menntaskóla Borgarfjarðar sem hélt góðgerðarviku nú í vor til styrktar Sorgarmiðstöðvar. Alls söfnuðust 642.477 krónur sem ...
Heiðursbollinn afhentur Rósu Kristjánsdóttur
Valdís Ólafsdóttir er hönnuður Heiðursbollans í ár. Valdís hannar undir merkinu “Dísa- Litlu hlutir lífsins” og vinnur mest með postulín sem hún steypir í gifsmót. Valdís ...
Sorgarmiðstöð hlýtur hvatningarverðlaun frá Rótarýklúbbnum
  Það var Sorgarmiðstöð mikill heiður að hljóta hvatningarverðlaun Rótarýklúbbs Straums þann 7. maí 2026. Viðurkenningin er mikilvæg hvatning fyrir starfsemi Sorgarmiðstöðvarinnar og staðfesting á ...
Stjórn endurkjörin á aðalfundi
Aðalfundur Sorgarmiðstöðvar var haldinn miðvikudaginn 15. apríl í Lífsgæðasetrinu. Allir í stjórn ársins 2025 buðu sig fram aftur og voru endurkjörnir til annars tímabils. Berglind ...
Samtalsþjónustan nú í boði á Akureyri
Sorgarmiðstöð hefur útvíkkað þjónustu sína á norðurlandi og býður nú upp á samtalsþjónustu á Akureyri. Viðtölin fara fram í húsakynnum Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis en ...
Aðalfundur Sorgarmiðstöðvar verður haldinn í apríl
Aðalfundur Sorgarmiðstöðvar verður haldinn miðvikudaginn 15. apríl kl. 18:00-20:00 í Lífsgæðasetrinu. Dagskrá aðalfundar:

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira