Systkinamissir

Að missa systkini er mikið áfall. Oft fylgir slík reynsla börnum og ungmennum ævina á enda. Það er því nauðsynlegt að vinna vel úr sorginni svo áfallið verði ekki hamlandi seinna meir. Fagleg aðstoð, fjölskyldan, vinir og að hitta aðra sem deila reynslu er oft mikil hálp.

Sorgarmiðstöð býður upp á námskeið og hópastarf fyrir börn og ungmenni sem hafa misst systkini.

 Nauðsynlegt er að skrá sig  á námskeið/í hópastarf til að tryggja þátttöku. 

 

Börn og ungmenni 6-15 ára 

Námskeiðið er fjóra laugardaga  (vegna COVID eru nýjar dagsetningar í skoðun)

Nánari lýsing:  Á námsskeiðinu fá allir tækifæri til að skapa, upplifa, og tjá sig í gegnum leik og verkefni í öruggu og styðjandi umhverfi. Hópunum er aldursskipt og er lögð áhersla á að mæta þörfum hópsins og hvers og eins innan hans.
Námskeiðið stuðlar að jákvæðri uppbyggingu og verður unnið sérstaklega með eftirfarandi þætti:

TRAUST  – Efnisþættir: Sjálfstraust, hugrekki, að treysta öðrum, að treysta aðstæðum.
TENGSL – Efnisþættir: Félagslegur og tilfinningalegur lærdómur, samskipti, samvinna, tjáning og samkennd.
SJÁLFSÞEKKING – Efnisþættir: Aukin meðvitund varðandi færni, líðan og samskipti, yfirfærsla á daglegt líf, jákvæð reynsla.

Elísabet Lorange, listmeðferðarfræðingur og Helga Jóna Sigurðardóttir, iðjuþjálfi og fjölskyldumeðferðafræðingur halda utan um námskeiðið en þær hafa báðar mikla reynslu af vinnu með börnum og sinna einnig hópastarfi barna í Ljósinu.

 

Námskeiðið er frá kl. 11-14 og er boðið upp á hádegishressingu.

 

Ungmenni 16-18 ára (menntaskólaaldur)

Er boðið upp á hópastarf að kvöldi til á virkum degi. Farið verður af stað með hóp um leið og lágmarks þátttöku er náð. Því er um að gera að skrá sig sem fyrst.

Skráning í hópastarf

Lokað yfir hátíðirnar

Sorgarmiðstöð verður lokuð frá 25. desember til 2. janúar. Ef erindið er brýnt má hringja í neyðarsíma okkar 862 4141

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira