Hver vegur að heiman er vegur heim

5.500kr.

Á lager

Upplýsingar

Vigfús Bjarni Albertsson deilir í þessari bók sinni bæði þekkingu og reynslu af glímu fólks við þjáninguna, sorgir og tilgang lífsins. Hann býður lesandanum með sér í ferðalag þar sem hann kynnir af einlægni eigin áskoranir og sjálfsskoðun í öldugangi lífsins. Höfundur segir af nærgætni sögur af aðstæðum fólks og atburðum sem mörgum virðast kunnuglegar. Frásagnirnar byggjast bæði á fræðilegri menntun höfundar og tuttugu ára reynslu hans af sálgæslu, en hann hefur starfað sem sjúkrahúsprestur, forstöðumaður við Sálgæslu- og fjölskylduþjónustu kirkjunnar, unnið í mannauðsmálum kirkjunnar og sem kennari í sálgæslufræðum.

Í bókinni er varpað fram spurningum eins og hver er ég, hver ert þú og hver er guð, eða æðri máttur. Í frásögnum er vitnað til sálgæslufræða og sagt reynslusögur. Bókin getur því höfðað til allra sem hafa áhuga á mannlegri tilveru, hvort sem um er að ræða fagfólk eða manneskjur sem gleðjast og þjást.

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira