Veitum hlýju

Það sem okkur er hlýtt í hjartanu núna!

Í vor fórum við af stað með verkefnið “Veitum hlýju” þar sem saumaðir eru hitapokar og hafa ýmsar unglingadeildir grunnskóla tekið þátt í verkefninu. Í haust ákváðu krakkarnir í 8. bekk í Lindaskóla í Kópavogi að taka verkefnið að sér og í síðustu viku skiluðu þau af sér fyrstu pokunum.

Pokarnir eru notaðir í stuðningshópastarfi okkar og eru einnig fáanlegir í vefversluninni: https://sorgarmidstod.is/verslun/hitapokar/

Takk kærlega fyrir stuðninginn kæru nemendur og kennarar! Þið eruð hreint út sagt mögnuð

Hugljúf stund í leiðiskransagerð
Mánudaginn 15. desember buðum við upp á leiðiskransanámskeið fyrir syrgjendur í Lífsgæðasetrinu. Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir kom til okkar líkt og fyrri ár og kenndi helstu ...
Styrkur í jólaþorpinu
Helgina 5.-7. desember var Sorgarmiðstöð með bás í jólaþorpinu í miðbæ Hafnarfjarðar. Þetta er annað árið sem við prófum að vera með viðveru í jólaþorpinu ...
Sorgartrén tendruð á aðventunni
Sorgartrén urðu tvö í fyrra, eitt stendur nú í Hellisgerði í Hafnarfirði og annað í Lystigarðinum á Akureyri. Þau voru bæði tendruð við fallegar athafnir ...
Samvera hópstjóra og jafningja í nóvember
Mínigarðurinn tók rausnarlega á móti Sorgarmiðstöð fyrstu vikuna í nóvember þar sem hópstjórar og jafningjar hittust og áttu góða kvöldstund saman. Í byrjun kvöldsins fór ...
Breyttur opnunartími á skrifstofu Sorgarmiðstöðvar
Opnunartími og símatími skrifstofu hefur nú verið lengdur og nú er hægt að nálgast okkur alla virka daga milli kl. 09 og 16 á skrifstofu Sorgarmiðstöðvar ...
 500 vinir í raun
Sorgarmiðstöð hefur nú náð þeim frábæra áfanga að eignast 500 vini í raun. Vinir í raun eru mánaðarlegir styrktaraðilar Sorgarmiðstöðvar en með þeirra ómetanlega framlagi ...

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira