Það er erfið lífsreynsla að missa ástvin. Þegar ástvinur deyr í kjölfar veikinda er ýmislegt í undanfaranum sem getur haft áhrif á hugsanir og líðan í úrvinnslu sorgarinnar. Það getur verið hjálplegt að gera sér grein fyrir hvaða þættir það eru sem hafa áhrif og hvað er eðlilegt að upplifa í veikindunum og eftir missinn. Í erindinu verður fjallað um þessa helstu þætti og bjargráð sem geta nýst okkur í sorgarúrvinnslunni.
Ína Ólöf Sigurðardóttir mun flytja erindið en hún er sálgætir með eigin reynslu af ástvinamissi eftir veikindi.
Þetta erindi verður haldið í safnaðarheimili Glerárkirkju á Akureyri.
Fimmtudaginn 12. mars kl. 18:00.
Gjaldfrjálst er á erindið en nauðsynlegt er að skrá sig hér.