Hópastarf fyrir þau sem misst hafa ástvin af völdum áfengis- eða vímuefnafíknar fer af stað í janúar. Haft verður samband við alla sem hafa skráð sig og eru á biðlista þegar þeirra hópur er að fara af stað.
Ef hópastarfið er fullt eða farið af stað er samt gott að skrá sig á biðlista fyrir næsta hópastarf.
Nánari upplýsingar og skráning hér en það er nauðsynlegt að skrá sig til að tryggja þátttöku.
Vegna aukinnar aðsóknar óskar Sorgarmiðstöð eftir því að þau sem skrá sig í stuðningshópastarf greiði staðfestingargjald að upphæð 3.000 kr. Staðfestingargjaldið er endurgoldið í formi bóka í lok hópastarfs. Staðfestingargjald á að greiða eftir að hópstjórar hafa staðfest skráningu viðkomandi með samtali.
Hópastarfið hefst kl. 20:00