Í LJÓSI AÐSTÆÐNA HEFUR VERIÐ TEKIN ÁKVÖRÐUN UM AÐ FRESTA ÞESSU ERINDI FRAM Á HAUSTIÐ.
Dr. Sigrún Júlíusdóttir, prófessor og þerapisti flytur erindið Sorg og missir í fjölskyldunni – staða ömmu og afa.
Í erindinu fjallar Sigrún um sorg og missi í fjölskyldum, einkum hver áhrif slík áföll hafa á stöðu ömmu og afa. Hún segir frá niðurstöðum nýlegra íslenskra rannsókna og ræðir um mikilvægi fjölskyldusamstöðu fyrir þrótt, seiglu og heilbrigði í lífsógnandi aðstæðum.
Einnig kynnir Sorgarmiðstöð nýtt stuðningshópastarf fyrir ömmur og afa sem misst hafa barnabarn eða styðja barnabarn sem misst hefur foreldri. Hópastarfið hefst 24. mars.
Erindið hefst kl. 20:00