03/10/2020
Glerárkirkja Akureyri

Erindi fyrir börn sem hafa misst ástvin – yngri hópur (5-10 ára)

Erindinu verður streymt í Glerárkirkju Akureyri í samstarfi við Samhygð – Mikilvægt er að skrá börnin á erindið.

Skráning hér

Sigríður Kristín Helgadóttir guðfræðingur með menntun í fjölskyldufræðum og Aron Már Ólafsson (Aron Mola) leikari koma og spjalla við börn um sorg og sorgarviðbrögð. Sigríður hefur mikla reynslu af því að ræða þessi mál sem okkur foreldrum reynist oft erfitt. Nálgun hennar er opin, hlý og þægileg. Hún teiknar gjarnan upp það sem hún er að ræða og heldur þannig athygli allra. Nálgun hennar er ekki trúarleg svo þetta erindi á að henta öllum börnum.
Aron Már missti systur sína af slysförum og gerði í framhaldi af því barnabók um tilfinningar ásamt Hildi Skúladóttur og Orra Gunnlaugssyni.
Bókin heitir Tilfinninga Blær og fjallar um mikilvægi þess að ræða opinskátt um tilfinningarnar sem við upplifum. Aron Mola ætlar að lesa upp úr bókinni og í lokin fá öll börn eitt eintak að gjöf. Líka börnin á Akureyri.
Ætlast er til að foreldrar mæti á erindið með börnum sínum á aldrinum 5-10 ára og verði á staðnum allan tímann. 

Erindið hefst kl 15:00


Við vonum svo innilega að þið nýtið ykkur þetta mikilvæga erindi. Það skiptir svo miklu máli að við hugum vel að börnum okkar sem eiga þessa erfiðu lífsreynslu að baki.

Lokað yfir hátíðirnar

Sorgarmiðstöð verður lokuð frá 25. desember til 2. janúar. Ef erindið er brýnt má hringja í neyðarsíma okkar 862 4141

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira