Sorgarmiðstöð býður reglulega upp á lokað erindi ,,Þegar ástvinur deyr“ um sorg og sorgarviðbrögð fyrir þau sem hafa misst ástvin.
Sorg og sárar tilfinningar eru eðlileg viðbrögð við missi. Sorgin er hluti af mannlegri reynslu og henni þarf að finna farveg. Mikilvægt er að vita að sorg er einstaklingsbundin og breytileg. Með grunnfræðslu um sorg og sorgarviðbrögð og ábendingum um ráð, sem gagnast hafa syrgjendum er leitast við að auka skilning á sorgarferlinu og þannig styðja fólk til að finna jafnvægi í daglegu lífi eftir ástvinamissi. Sorgarmiðstöð býður reglulega upp á þetta lokaða erindi fyrir þau sem hafa nýlega misst ástvin.
Á erindinu mun Sorgarmiðstöð einnig kynna stuttlega starfsemi sína.
Syrgjendum stendur til boða að taka náinn aðstandanda með sér á erindið ef þeir kjósa.
Nauðsynlegt er að skrá sig og aðstandanda á erindið til að tryggja pláss og er hámarksfjöldi í hvert skipti.
ATH: Þetta erindi er einungis ætlað fullorðnum.
Erindið er gjaldfrjálst en þau sem vilja styrkja okkur geta gert það hér
Erindið hefst kl. 18:00