22/02/2022
Sorgarmiðstöð - Lífsgæðasetur st. Jó

Erindi fyrir þau sem hafa nýlega misst ástvin – FULLT

Sorgarmiðstöð býður reglulega upp á lokað erindi um sorg og sorgarviðbrögð fyrir þau sem hafa nýlega misst ástvin

Því miður er orðið fullt á þennan viðburð. Hægt er að skrá sig á næsta erindi sem verður flutt í apríl. Skráning hér

Sorg og sárar tilfinningar eru eðlileg viðbrögð við missi. Sorgin er  hluti af mannlegri reynslu og henni þarf að finna eðlilegan farveg. Mikilvægt er að vita að sorg er einstaklingsbundin og breytileg.  Með grunnfræðslu um sorg  og sorgarviðbrögð og ábendingum um ráð, sem gagnast hafa syrgjendum er leitast við að auka skilning á sorgarferlinu og  þannig styðja fólk til að finna jafnvægi  í daglegu lífi  eftir ástvinamissi. Sorgarmiðstöð býður reglulega upp á þetta lokaða erindi fyrir þau sem hafa nýlega misst ástvin. Á erindinu mun Sorgarmiðstöð einnig kynna stuttlega starfsemi sína.

Syrgjendum stendur til boða að taka náinn aðstandanda með sér á erindið ef þeir kjósa.

Nauðsynlegt er að skrá sig og aðstandanda á erindið til að tryggja pláss og er hámarksfjöldi í hvert skipti.

Lokað yfir hátíðirnar

Sorgarmiðstöð verður lokuð frá 25. desember til 2. janúar. Ef erindið er brýnt má hringja í neyðarsíma okkar 862 4141

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira