Lokað frá 23. desember til 3. janúar. Allar pantanir sem berast á þeim tíma verða afgreiddar eftir 3. janúar. Gleðilega hátíð

18/02/2021
Sorgarmiðstöð - Lífsgæðasetur st. Jó

Óuppgerð og gömul sorg – Fræðsluerindi

Því miður er orðið fullt á þetta erindi og ekki tekið við fleiri skráningum. Það stendur hinsvegar til að streyma erindinu einnig beint á Facebooksíðu Sorgarmiðstöðvar.

Sorg er eðlileg tilfinning í kjölfar ástvinamissis. Hún er hins vegar mjög sár og íþyngjandi tilfinning sem við Íslendingar höfum haft tilhneigingu til að forðast eða reynt að fara í gegnum á hnefanum. Það er ekki hentug leið. Ef við tökumst ekki á við sorgina okkar getur hún verið hamlandi seinna meir og hindrað okkur í að takast á við lífið á eðlilegan og góðan máta. Gömul og óuppgerð sorg ýfist einnig oft upp við nýtt áfall eða missi.

Anna Lóa Ólafsdóttir eigandi Hamingjuhornsins sem jafnframt er kennari, náms- og starfsráðgjafi og með diplómu í sálgæslu mun mæta til okkar og flytja erindi um þá erfiðu stöðu þegar gömul og óuppgerð sorg hefur áhrif á okkar daglega líf.

Erindið hefst kl. 20:15

Allir velkomnir

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira