26/08/2020
Lífsgæðasetur st. Jó

Sorg og sorgarviðbrögð – Lokað erindi fyrir þau sem hafa nýlega misst ástvin

Sorg og sárar tilfinningar eru eðlileg viðbrögð við missi. Sorgin er  hluti af mannlegri reynslu og henni þarf að finna eðlilegan farveg. Mikilvægt er að vita að sorg er einstaklingsbundin og breytileg.  Með grunnfræðslu um sorg  og sorgarviðbrögð og ábendingum um ráð, sem gagnast hafa syrgjendum er leitast við að auka skilning á sorgarferlinu og  þannig styðja fólk til að finna jafnvægi  í daglegu lífi  eftir ástvinamissi. Sorgarmiðstöð býður reglulega upp á þetta lokaða erindi fyrir þau sem hafa nýlega misst ástvin. Á erindinu mun Sorgarmiðstöð einnig kynna stuttlega starfsemi sína ásamt því að bjóða viðstöddum upp á léttan kvöldverð.

Syrgjendum stendur til boða að taka einn náinn aðstandanda með sér á erindið ef þeir kjósa. Nauðsynlegt er að skrá sig og aðstandanda á erindið og er hámarksfjöldi í hvert skipti.

Skráning hér

Erindið hefst kl. 18:15 – 20:00

ATH: Það kostar ekkert á þennan viðburð en þeir sem vilja styrkja starfið er bent á styrktarreikning Sorgarmiðstöðvar.

Lokað yfir hátíðirnar

Sorgarmiðstöð verður lokuð frá 25. desember til 2. janúar. Ef erindið er brýnt má hringja í neyðarsíma okkar 862 4141

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira