Í LJÓSI AÐSTÆÐNA ÞURFUM VIÐ ÞVÍ MIÐUR AÐ FRESTA ÞESSU ERINDI
Sorg og sárar tilfinningar eru eðlileg viðbrögð við missi. Sorgin er hluti af mannlegri reynslu og henni þarf að finna eðlilegan farveg. Mikilvægt er að vita að sorg er einstaklingsbundin og breytileg. Með grunnfræðslu um sorg og sorgarviðbrögð og ábendingum um ráð, sem gagnast hafa syrgjendum er leitast við að auka skilning á sorgarferlinu og þannig styðja fólk til að finna jafnvægi í daglegu lífi eftir ástvinamissi. Sorgarmiðstöð býður reglulega upp á þetta lokaða erindi fyrir þau sem hafa nýlega misst ástvin. Á erindinu mun Sorgarmiðstöð einnig kynna stuttlega starfsemi sína ásamt því að bjóða viðstöddum upp á léttan kvöldverð, kaffi og með því.
Syrgjendum stendur til boða að taka einn náinn aðstandanda með sér á erindið ef þeir kjósa. Nauðsynlegt er að skrá sig og aðstandanda á erindið og er hámarksfjöldi í hvert skipti.
Skráning hér
Erindið hefst kl. 18:15 – 20:00
ATH: Vegna Covid getum við ekki boðið upp á léttan kvöldverð að þessu sinni og verður erindið því til klukkan 19:30 í stað 20:00