Lokað frá 23. desember til 3. janúar. Allar pantanir sem berast á þeim tíma verða afgreiddar eftir 3. janúar. Gleðilega hátíð

06/10/2021
Vífilstaðavatn

Gönguhópurinn SKREF fyrir SKREF

Gönguhópur Sorgarmiðstöðvar SKREF fyrir SKREF býður upp á skipulagðar göngur einu sinni í mánuði.

Þann 6. október munum við ganga í kringum Vífilstaðavatn. Lengd göngu er um 3 km og er gengið á stígum. Lagt verður af stað kl. 17:00 frá fyrsta bílastæðinu sem komið er að við vatnið eftir hægri beygju á gatnamótunum þegar keyrt hefur verið framhjá Vífilsstöðum. Munið að koma klædd eftir veðri og í góðum skóm.

Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir og Soffía Bæringsdóttir frá Sorgarmiðstöð leiða gönguna.

Allir velkomnir

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira