Gönguhópur Sorgarmiðstöðvar SKREF fyrir SKREF býður reglulega upp á skipulagðar göngur.
Þann 11. apríl munum við ganga í kringum Vífilstaðavatn. Lengd göngu er um 3 km og er gengið á stígum. Lagt verður af stað kl. 17:00 frá fyrsta bílastæðinu sem komið er að við vatnið eftir hægri beygju á gatnamótunum þegar keyrt hefur verið framhjá Vífilsstöðum. Munið að koma klædd eftir veðri og í góðum skóm.
Það er nauðsynlegt að skrá sig hér í gönguna og er lágmarksþátttaka.
Birna og Guðrún Jóna frá Sorgarmiðstöð leiða gönguna.
Allir velkomnir