03/11/2020
Öskjuhlíð

Gönguhópurinn SKREF FYRIR SKREF – FRESTAÐ

Í LJÓSI AÐSTÆÐNA ÞURFUM VIÐ ÞVÍ MIÐUR AÐ FRESTA GÖNGUNNI

Gönguhópur Sorgarmiðstöðvar SKREF FYRIR SKREF býður upp á skipulagðar göngur fyrsta þriðjudag í mánuði. Þriðja ganga hópsins verður í Öskjuhlíð. Nánari upplýsingar koma síðar.

Þegar við upplifum áfall eins og ástvinamissi er flestum hjálplegt að komast í kynni við og hitta aðra sem eru í sömu sporum, finna skilning og stuðning þeirra sem deila reynslu. Það er sumt sem getur hjálpað okkur til að líða betur eins og hreyfing og útivist. Að nýta náttúruna og útiveru gefur okkur orku og losar um spennu. Göngur eru því hjálplegar þegar við tökum skrefin framávið í sorgarferlinu.

Við vonum innilega að þið sláist í för með okkur

Gangan hefst kl 17:00

Lokað yfir hátíðirnar

Sorgarmiðstöð verður lokuð frá 25. desember til 2. janúar. Ef erindið er brýnt má hringja í neyðarsíma okkar 862 4141

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira