Gönguhópur Sorgarmiðstöðvar SKREF fyrir SKREF býður upp á skipulagðar göngur fyrsta þriðjudag í mánuði.
Næsta ganga verður þriðjudaginn 2. mars. Þá munum við ganga hringinn í kringum Vífilsstaðavatn.
Lagt verður af stað kl.17:15 frá fyrsta bílastæðinu sem komið er að við vatnið eftir hægri beygju á gatnamótunum þegar keyrt hefur verið framhjá Vífilsstöðum.
Gangan hringinn í kringum vatnið er um 2,6 km en að auki ætlum við í rólegheitum að ganga upp á Vífilstaðahlíð að vörðu sem heitir Gunnhildur.
Allir velkomnir – Munið að koma klædd eftir veðri og í góðum skóm.