06/04/2021
Elliðaárdalur

Gönguhópurinn SKREF fyrir SKREF

Þann 6. apríl munum við ganga saman í Elliðaárdalnum. Við ætlum að hittast við „Hitt húsið, Rafstöðvarvegi 7-9“. Til þess að beygja inn á Rafstöðvarveg þá er tekin fyrsta malbikaða hægri beygjan í Ártúnsbrekkunni á leið til austurs. Gangan hefst stundvíslega kl. 17:15 og munum við labba góðan hring, ekki mikið um hækkanir. Mikilvægt er að vera í góðum skóm og klædd eftir veðri.
Munum að passa upp á 2 m regluna og notum grímu þar sem ekki er hægt að tryggja hana.
Guðrún Jóna og Soffía munu leiða gönguna.

Allir velkomnir 

Lokað yfir hátíðirnar

Sorgarmiðstöð verður lokuð frá 25. desember til 2. janúar. Ef erindið er brýnt má hringja í neyðarsíma okkar 862 4141

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira