Í LJÓSI AÐSTÆÐNA HEFUR VERIÐ TEKIN ÁKVÖRÐUN UM AÐ FRESTA ÞESSU HÓPASTARFI FRAM Á HAUSTIÐ.
Að missa náinn fjölskyldumeðlim er án efa einn erfiðasti atburður í lífi okkar. Foreldrar, börn og ömmur og afar sitja eftir með brostið hjarta og spurningar sem enginn getur svarað. Fagleg aðstoð, fjölskyldan, vinir og – kannski einna mikilvægast – einstaklingar í svipaðri stöðu eru flestum besta hjálpin.
Sorgarmiðstöð býður upp á stuðningshópastarf fyrir ömmur og afa sem misst hafa barnabarn eða styðja barnabarn sem misst hefur foreldri.
Hópastarfið er í 4 skipti og hefst 24. mars
Nauðsynlegt er að skrá sig í hópastarfið til að tryggja þátttöku. Hægt er að skrá sig hér
Hópastarfið er frá kl. 20:00 – 21:30
ATH: Það kostar ekkert að koma í hópastarf