Erindi um jólin og sorgina mánudaginn 24. nóvember kl. 18.00 í Lífsgæðasetrinu, Hafnarfirði.
Í augum flestra eru jólin tími tilhlökkunar og gleði en þau geta líka verið erfiður tími, sérstaklega fyrir þau sem hafa misst ástvin. Ína Lóa Sigurðardóttir mun flytja erindi um sorgina og jólahátíðina sem framundan er og ýmis bjargráð sem geta nýst syrgjendum á þessum tíma.
Erindið er gjaldfrjálst en við biðjum fólk um að skrá sig til að halda utan um fjölda.
Skráning er á erindið hér í gegnum þennan hlekk.