Í augum flestra eru jólin tími tilhlökkunar og gleði en þau geta líka verið erfiður tími, sérstaklega fyrir þau sem hafa misst ástvin. Ína Lóa Sigurðardóttir mun flytja erindi um sorgina og jólahátíðina sem framundan er og ýmis bjargráð sem geta nýst syrgjendum á þessum tíma.
Erindið verður í beinu streymi í Glerárkirkju þriðjudaginn 3. desember kl. 18:00.
Öll velkomin.