06/12/2023
Í streymi

Jólin og Sorgin (á netinu)

Í augum flestra eru jólin tími tilhlökkunar og gleði en þau geta líka verið erfiður tími, sérstaklega fyrir þau sem hafa misst ástvin. Ína Lóa Sigurðardóttir mun flytja erindi um sorgina og jólahátíðina sem framundan er og ýmis bjargráð sem geta nýst syrgjendum á þessum tíma. 

Erindið er liður í framtaki Heilsubæjarins Hafnarfjarðar og er hluti af heilsueflingu Hafnfirðinga og vina bæjarins. Eitt af þremur yfirmarkmiðum heilsustefnunnar er að finna leiðir og lausnir til að efla vellíðan íbúa og er það nú gert í samstarfi við Sorgarmiðstöð.

Erindið verður flutt á Facebook síðu Hafnarfjarðarbæjar. Fylgist með og skráið ykkur á Facebook viðburð.

Lokað yfir hátíðirnar

Sorgarmiðstöð verður lokuð frá 25. desember til 2. janúar. Ef erindið er brýnt má hringja í neyðarsíma okkar 862 4141

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira