Sorgarmiðstöð ætlar að bjóða upp á námskeið í gerð kransa fyrir leiði eða á útidyrahurðina fyrir jólin mánudaginn 15. desember frá kl. 19:30. Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir ætlar að koma til okkar líkt og áður og kenna okkur helstu handbrögð við að útbúa fallega kransa.
Við munum panta grunnefni (kransa, vír og pinna) sem gengur upp í staðfestingagjaldið, en fólk þarf sjálft að koma með greinar og annað skreytingarefni (furugreinar, lyng, sýprus, eriku, ber eða hvað sem ykkur dettur í hug). Einnig er gott að hafa meðferðis klippur, skæri og límbyssu ef einhver á það til.
Eitt að bjargráðunum í sorg er að hvíla sig frá sorginni, dreifa huganum og gera eitthvað sem gleður og er uppbyggjandi. Við ætlum því að hafa það notalegt saman, útbúa kransa og fá okkur kaffi og með því.
Vonandi hafið þið áhuga á að koma og vera með okkur.
Það er nauðsynlegt að skrá sig og greiða staðfestingagjald til að tryggja þátttöku. Gjaldið er 4000 kr. og nánari upplýsingar um greiðslutilhögun eru í skráningarskjalinu hér
ATH: Þetta námskeið er einungis ætlað fullorðnum en ungmenni eru velkomin með.
Ef þið viljið skoða tillögur að efnivið og fá hugmyndir, þá getið þið skoðað síðuna hennar Ingunnar „Kransandi” hér