12/03/2026
Lífsgæðasetur, Lungað 2. hæð

Lífið eftir missi – hamingjan í hversdagsleikanum


Erindi frá Lilju Cederborg frá KVAN.

Missir breytir lífinu á djúpstæðan hátt. Hann getur skilið eftir tómarúm og spurningar um tilgang og framtíð. Í þessum fyrirlestri er sjónum beint að lífinu eftir missi með því að skoða hvernig hægt er að finna ljósið smám saman aftur.

Fjallað verður um hamingju í hversdagsleikanum og hvernig hún birtist oft í litlu augnablikunum sem við tökum gjarnan sem sjálfsögðum hlut. 

Erindið hvetur fólk til þess að hægja á, veita tilfinningum rými og leyfa sér að finna gleði samhliða sorginni. Lögð er áhersla á að hamingja eftir missi snýst ekki um að „komast yfir“ sorgina, heldur að læra að lifa með henni og finna nýja merkingu í lífinu.

Markmiðið er að veita von og hagnýt verkfæri sem hjálpa fólki að feta sig í nýjum raunveruleika. 

Lilja er útskrifaður tómstunda og félagsmálafræðingur og hefur starfað við námskeiða og fyrirlestrahald hjá fyrirtækinu KVAN í 8 ár.  Á fyrirlestrinum mætast fagleg þekking og persónuleg reynsla, þar sem leitt er hlustendur af staðfastri trú á að hver og einn geti fundið sinn styrk á ný.

Takmarkað pláss er í boði á erindið og skráning því nauðsynleg í gegnum hlekkinn hér

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira