15/01/2021
Sorgarmiðstöð - Lífsgæðasetur st. Jó

Makamissir – lokaður stuðningshópur (hópur C)

Hópastarf fyrir makamissi fer af stað – hópur C.
Haft verður samband við alla sem eru á biðlista símleiðis þegar þeirra hópur fer af stað. Næstu stuðningshópar fara af stað í febrúar


Ef hópastarfið er fullt eða farið af stað er samt gott að skrá sig því um leið og ákveðnum fjölda er náð reynum við að fara af stað með nýjan stuðningshóp.

Hægt er að skrá sig hér

Sorgarmiðstöð býður upp á stuðningshópa fyrir ekkjur og ekkla sem hafa orðið fyrir makamissi. Í hverjum hópi eru um tíu manns sem hittast vikulega og eru tveir fagaðilar sem halda utan um hvern hóp. Stuðningshópastarfið er í 6 vikur og er skipt í hópa eftir fjölda og aldri.

Það kostar ekkert að koma í hópastarf en það er nauðsynlegt að skrá sig til að tryggja þátttöku.

Lokað yfir hátíðirnar

Sorgarmiðstöð verður lokuð frá 25. desember til 2. janúar. Ef erindið er brýnt má hringja í neyðarsíma okkar 862 4141

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira