10/11/2020

Fræðsluerindi – Birta

Birta er félagsskapur foreldra og forráðamanna barna og ungmenna sem látist hafa fyrirvaralaust.

Hefur þú misst barn?

Birta – landssamtök foreldra/forráðamann sem misst hafa börn/ungmenni skyndilega, verða með fræðsluerindi í streymi þriðjudaginn 10. nóvember n.k. kl. 20:00.

Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson fjallar af eigin reynslu um skyndilegan barnsmissi og þann styrk sem hægt er að finna eftir slíkt áfall.

Hrannar ætlar að leiða okkur inn í komandi jólahátíð og velta upp áskorunum sem foreldrar geta staðið frammi fyrir.

Nánari upplýsingar verða birtar hér á facebook-síðu og vefsíðu samtakanna www.birtalandssamtok.is

Við minnum á neyðarsíma samtakanna: 832 3400

Með kærri kveðju, Birta landssamtök

Lokað yfir hátíðirnar

Sorgarmiðstöð verður lokuð frá 25. desember til 2. janúar. Ef erindið er brýnt má hringja í neyðarsíma okkar 862 4141

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira