08/09/2020
Lífsgæðasetur st. Jó

Opið hús og djúpslökun

ATH: það er því miður orðið fullt í djúpslökun 8. september en vegna COVID getum við einungis tekið á móti litlum hópi.
Það þarf ekki að skrá sig á Opna húsið (spjallið) sem hefst kl 20.

Þegar við upplifum áfall eins og ástvinamissi er flestum hjálplegt að komast í kynni við og hitta aðra sem eru í sömu sporum, finna skilning og stuðning þeirra sem deila reynslu.
Sorgarmiðstöð býður upp á opið hús og djúpslökun á 6 vikna fresti. Þar gefst syrgjendum tækifæri til að mæta í Yoga Nidra djúsplökun og eiga svo gott samtal á eftir við aðra sem deila reynslu af ástvinamissi. Ákveðið umræðuefni er tekið fyrir hverju sinni. Frjálst er að mæta bæði í djúpslökun og spjall eða annað hvort.
Þeir sem ætla að mæta í Yoga Nidra djúpslökun verða að skrá sig hér (orðið fullt, ekki hægt að skrá sig)

Nánari lýsing: 
Yoga Nidra hefst kl. 19:30 í sal Sorgarmiðstöðvar Lunganu og munu Sigrún og Ólafur Yoga Nidra kennarar leiða hópinn inn í notalega djúpslökun. Samtal um ástvinamissi hefst kl. 20:00 í minni sal Sorgarmiðstöðvar Hjartanu, á sömu hæð.

Verið innilega velkomin

Boðið er upp á kaffi og með því.

ATH: Það kostar ekkert á þennan viðburð.

Hefst kl 19:30

Lokað yfir hátíðirnar

Sorgarmiðstöð verður lokuð frá 25. desember til 2. janúar. Ef erindið er brýnt má hringja í neyðarsíma okkar 862 4141

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira